|
|
07.08.2009 10:03:31 / bolti
Hvað hafa menn að segja um þennan leik?
»
28.04.2009 21:27:43 / Hjördís
Komiði sæl og blessuð kæru Keflvíkingar. Nú er sumarið komið og grasið að grænka og þá byrjar fótboltinn að rúlla sem við höfum beðið eftir í allan vetur. Nú er að byrja nýtt tímabil og það er það sem skiptir öllu máli. Liðið hefur tekið nokkrum breytingum frá því á síðasta ári, einhverjir hafa farið og nýjir hafa komið. Svona gengur þetta bara fyrir sig. Liðið okkar er bara þrusu gott í ár og ég efast ekkert um að hugur þeirra sé á toppnum þetta árið. Við erum með sterkan hóp, blandaðan af reynsluboltum og ungum leikmönnum sem margir stíga sín fyrstu skref í úrvalsdeild þetta sumarið og saman ætla þeir alla leið. Fyrirliðaparið kemur sterkt inn með þá Bóa og Guðjón og koma þeir til með að leiða liðið áfram til enda tímabils. Tímibilið leggst ágætlega í mig og eru menn nokkuð heilir fyrir utan Ómar kallinn og Nicolai, en sá síðarnefndi ætti að detta inn vonandi fljótlega í maí. Ómar er trúlega ekki klár fyrr en í síðarihlutanum. Vonandi verða bæjarbúar duglegir eins og áður að styðja við liðið sitt og fylgja því í allt sumar. Vænti þess að Pumasveitin verði einnig við völd því við vitum að Pumasveitin er lykillinn að góðri stemmingu sem liðið þráir að heyra. Er það ekki??  Liðið fór í góða æfingaferð sú allra besta síðustu ár er haft eftir mönnum en það er mjög mikilvægur undirbúningur fyrir liðið að hafa haft kost á því að fara í svoleiðis ferð. Mfl. náði að safna fyrir þessari ferð sjálfir sem sýnir dugnað þeirra. En þeir komu gríðarlega sterkir heim og spiluðu æfingaleik á sunnudaginn við Víking og úrslitin urðu 4-1 Jón Gunnar með 1 og aldursforsetinn Jói B. með þrennu. Vonandi verðu þetta forsmekkurinn á því sem koma skal  Fyrsti leikurinn er 11. maí gegn FH og það verður byrjað af krafti og stefnt á 3 stig þar ekkert annað  Allir á völlinn og verum dugleg að syngja, styðja og tralla í 90 mínútur og fagna í leikslok. Það er málið....... Miðaverð á leiki er lækkað en það kostar 1200 kr inn og 500 fyrir börn. Hægt er að kaupa árskort hjá Knattspyrnudeildinni á 8000 kr. Koma bara við á skrifstofunni í næstu viku til að nálgast það. Upplýsingar í síma 421-5188 ÁFRAM KEFLAVÍK 2009 !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Boltakveðja Hjördís P.S. Hvernig er með hina síðuna?? Getur einhver svarað því??
»
14.11.2008 20:07:18 / bolti
Jæja hálsar eru menn búnir að jafna sig? Held að þorri þjóðarinnar hafi viljað titilinn til Kef. allavega hefur fólk "grátið" samúðar tárum til okkar. Nú ganga erfiðir tímar í hönd fjárhagslega ( að vísu verið viðlogandi okkar félag lengi, en verri nú) þannig að það gæti reynt meira á okkur fólkið sem eigum þetta félag. Bjóðum okkar orku inn í starfið eða tökum völdin í okkar hönd og gerum eitthvað sniðugt til þess að afla fjár til að halda áfram að sjá lang skemmtilegasta og besta lið landsins dafna og vaxa að þeim stóra. - Pumasveitin eru snillingar tímabilsins og eru þeir þessi x-faktor sem stóð uppúr á þessu móti. Strákar - snillingar! Liðið og þjálfarateymi sýndi frábæra takta og góða heild en meistara reynsluna vantaði. Framkvæmdarstjóinn er að gera góða hluti og er góður drengur. Hvernig er stjórnin að standa sig? Eru menn ánægðir með þeirra störf? Hvernig er staðan á félaginu þurfið þið hjálp stjórnarmenn? Þið vitið að þetta er félagið okkar og ykkur ber að upplýsa okkur stuðningsmenn ef vandi er á höndum svo við getum hjálpað!!! Ekki gleyma því!!! Því við erum til - er það ekki? Keflavík - ummmm ..... Kv Stone
»
11.09.2008 15:44:00 / Drummer
Jæja kæru Keflvíkingar, þá erum við loksins búnir að opna nýja heimasíðu! Og about time. Við vorum að opna nýja og glæsilega heimasíðu fyrir stuðningsmenn okkar og var hún opnuð formlega í dag. Nú
bjóðum við loksins uppá alvöru spjall- og fréttasíðu fyrir
stuðningsmenn okkar sem lengi hefur vantað hjá okkur, og verður þessi
síða jafnt og þétt að bæta við sig og vonumst við til þess að þetta
verði lifandi og góður vettvangur fyrir stuðningsmenn Keflavíkur sem og
annara liða til að skiptast á skoðunum og ræða málin sín á milli. Heimasíðan er sponseruð af Býr ehf og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Heimasíðan er www.keflvikingar.com Nú verður þessi síða hér ekki notuð meira, þannig að setjið nýju síðuna í favorites hjá ykkur, og verið dugleg að koma inná hana, og ræða málin og bara hafa gaman af. Nú er skráð spjallsvæði, þannig að menn skrá sig inn og eru með fast spjallnafn. Þannig að pick carefully  WWW.KEFLVIKINGAR.COM Újé !
»
07.09.2008 19:21:40 / bolti
Næsti leikur er á móti Fjölni en þeir unnu okkur í fyrri umferð og það á okkar heimavelli. Við verðum að hefna fyrir það tap og ná okkur í 3 stig. Ég held að við höfum einusinni mætt Fjölnismönnum á þeirra heimavelli. Í bikarkeppninni fyrir einhverjum árum. Fjölmennum á leikinn og styðjum strákana í að innbyrða 3 stig. Áfram Keflavík Rúnar I. Hannah
»
05.09.2008 12:20:40 / Drummer
Næstkomandi laugardag þann 6. september tekur 3. flokkur karla Keflavíkur á móti Fjölnismönnum á Sparisjóðsvellinum í Keflavík klukkan 12:00 í úrslitaleik VISA-bikarkeppni KSÍ.
Árangur strákanna í sumar hefur verið góður, t.d. fóru þeir alla leið í
úrslitaleikinn á Rey-Cup þar sem þeir biðu lægri hlut á móti Charlton
frá Englandi í vítaspyrnukeppni. Gengið í deildinni hefur einnig verið
gott en þeir eru í 2. sæti í B-deild og eiga möguleika á að komast í
efsta sætið og öðlast þátttökurétt í úrslitakeppninni um
Íslandsmeistaratitilinn og eru þegar búnir að tryggja sér sæti í
A-deild að ári.
Fyrir hönd allra í 3. flokki karla Keflavíkur vonum við að sjá sem flesta og styðja við bakið á strákunum.
Þess má svo einnig til gamans geta að við höfum ráðist í gerð nýrrar heimasíðu fyrir stuðningsmenn Keflavíkur og við stefnum á að frumsýna hana fyrir næsta leik gegn Fjölni á útivelli. Fylgist vel með.
»
02.09.2008 14:26:52 / bolti
Ég auglýsi hér með eftir styrktaraðila fyrir nýja heimasíðu. Það er einn búinn að bjóða sig fram í að búa til heimasíðu og okkur vantar einhvern til að kaupa lén og hýsingu. Annað hvort .com eða .is lén. Ath. ég er ekki að biðja um ábendingar um fyrirtæki. Bara biðja einhvern sem er tilbúinn að borga brúsann að hafa samband. Þetta er ekki mikill kostnaður ef við fáum okkur .com endingu. Fyrirtækið getur verið með auglýsingu á síðunni. Ekki er hugmynd um að safna auglýsingum á síðuna svo líklegast verður þetta eina nafnið á síðunni fyrir utan vitaskuld KEFLAVÍK. Áfram Keflavík. Rúnar I. Hannah klukkurunar@hotmail.com
»
01.09.2008 14:38:43 / Drummer
Ég var búinn að skrifa drullugóða og stóra færslu eftir leikinn í gær, en þetta helvítis kerfi hérna var eitthvað bilað og færslan vildi ekki fara inn, en það kom að hún væri saved, og ég ætlaði að setja hana inn þegar kerfið kæmist í lag, en núna er hún horfin,, urrrrr ég er illa pirraður núna!
Set kannski inn umfjöllun um leikinn seinna í dag ef ég nenni..
En, frábær sigur og liðsheildin frábær og við bara í toppmálum.
Vinsamlegast ræðið leikinn og markmið okkar það sem eftir er tímabils, og eins bara sumarið í heild sinni.
Takk fyrir, góðar stundir
PS. Ný könnun komin inn, allir að svara..
»
29.08.2008 15:10:19 / Drummer
Jæja kæru Keflvíkingar, þá eru aðeins 5 leikir eftir af þessu Íslandsmóti og við Keflvíkingar bara í helvíti flottum málum. Erum á toppnum rétt á undan FH og erum búnir að skora grimmt í sumar, og erum að setja persónuleg met í hverjum einasta leik. Ég bara trúi ekki öðru en að þetta sé árið okkar, og mikið djöööfull yrði það sweet að landa loksins loksins þeim stóra eftir alltof margra ára bið..!
Næsti leikur hetjanna okkar er á hinum magnaða heimavelli okkar gegn nágrönnum okkar úr Grindavík, en þeir hafa verið að sækja í sig veðrið að undanförnu og megum við því búast við hörkuleik á sunnudaginn kemur. Grindavík er sem stendur í 7.sæti með 24 stig en við að sjálfsögðu á toppnum með 37 stig, og væri ekki verra að skella okkur í 40 stigin með sigri á sunnudaginn.
Mig langar til þess að hrósa stuðningsmönnum fyrir ykkar framleg í stúkunni í sumar, ég þekki nú velflest stuðningsliðin í deildinni og menn eru oft að pirra sig á því hversu lítið áhorfendur taka undir með þeim á leikjum, en í Keflavík hefur verið mikil breyting á undanfarin ár og ég get með sanni sagt það að okkar áhorfendur eru mjög vel með á nótunum og ég elska það þegar allir í stúkunni henda höndunum uppí loft og klappa með þegar við tökum "Ef þú fílar Keflavík þá gefmér klapp.." og eins þegar ég tek "Þegar ég segi Kefla þið segið Vík" og menn eru bara almennt mjög vel með á nótunum. Og þannig á það líka bara að vera, þetta er sameiginlegt átak okkar allra, leikmanna-stuðningsmanna-stjórnarmanna og bara allra sem að okkar elskulega liði koma. Ég er að fíla þetta!
En nú fjölmennum við sem aldrei fyrr á völlinn á sunnudaginn kl 18, og hey, fuck the weather,, "Hvernig sem fer í hvernig veðri sem er, þar verðum við og styðjum okkar lið..!"
Nú kemur svo smá hlé á deildinni vegna landsleikja þannig að við ætlum okkur að fara drullusátt inní þann pakka. Sjáumst öll á Sparisjóðsvellinum á sunnudaginn og þjófstörtum Ljósanæturhelginni með vel séðum sigri á Grindvíkingum..!
ÁFRAM KEFLAVÍK!
*ATH* Það er einhver villugyðingur að þvælast fyrir okkur í commentakerfinu eins og er, erum að reyna að laga þetta. Vonum að þetta leysist sem fyrst.
»
25.08.2008 00:35:57 / Drummer
Já það var hörkuleikur í Vesturbænum í kvöld, en það hefði verið afar ljúft að taka 3 stig. En við vorum aðeins með í leiknum í 45 mín, en fyrri hálfleikurinn hjá okkur var einn sá slakasti sem ég hef séð lengi. Menn óöryggir á boltann og vantaði allt flæði, ekkert að gerast fram á við og vorum bara hreinlega ekki mættir í fyrri hálfleik. En í seinni hálfleik og með fínum innáskiptingum breyttist leikur okkar manna og liðið fór að spila eins og það á að sér og þá fór þetta allt í gang.
Skoruðum 2 góð mörk og manni fannst við vera að landa þessu, en því miður hafðist það ekki, og á sama tíma jafnaði FH þannig að deildin er ennþá galopin.
Ætla nú ekkert að vera að fara í einhver einstök atriði úr leiknum, en ég verð að minnast á þetta comment hérna að neðan, en ég bara hreinlega tók ekki eftir því að Jói Gumm hafi verið inná, hvort sem það segir meira um mína sjón á leikinn eða Jóa veit ég ekki, en mér finnst Jói nýtast langbest á kantinum, og væri til í að sjá hann spila þar sem honum líður best. En mikið djöfull er Redo snöggur, spurning hvar hann tekur bensín fyrir leiki...
En næsti leikur okkar er á heimavelli gegn nágrönnum okkar úr Grindavík og er það eeeeeenn einn helv sunnudagsleikurinn,, er þetta ekki komið ágætt ?? Djöfull vona ég að þessu verði breytt á næsta sesoni,, hef alveg óbeit á þessum sunnudagsleikjum og ég veit að ég er alls ekki einn um það, og sömuleiðis eru leikmenn flestallir ekki sáttir við þennan leikdag, og skil ég það vel. Leikir á fimmtudögum og sjónvarpsleikur á laugardegi er það sem mér líst best á, og hafa bikarleikina á laugardögum, reyna að gera soldið vel við þessa bikarleiki. En allir sjónvarpsleikir eru afar vel séðir, en þessir sunnudagsleikir eru ekki að frétta.
Næsti leikur, 3 stig og stefnum á titilinn.
ÁFRAM KEFLAVÍK !
»
19.08.2008 22:05:27 / Drummer
Hólmar Örn Rúnarsson lék sinn 100. leik fyrir
Keflavík í efstu deild þegar liðið vann Þrótt á dögunum. Hólmar lék
sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn ÍA í september árið 2000. Hann
hefur skorað 13 mörk í leikjunum 100 og hefur auk þess leikið 18 leiki
í næstefstu deild (6 mörk), 20 bikarleiki (6 mörk) og átta leiki í
Evrópukeppnum (1 mark). Hólmar hefur verið í fantaformi í sumar og er
í landsliðshópi Íslands sem mætir Aserbaídsjan í kvöld.
Með mörkunum fimm gegn Þrótti settu strákarnir nýtt
félagsmet en liðið er búið að skora 41 mark í sumar en áður hafði
Keflavík mest skorað 36 mörk á einu tímabili í efstu deild. Markið
sem Magnús gerði í leiknum var 9. markið sem varamenn Keflavíkur hafa
gert í deildinni í sumar. Það er líka athyglisvert að það voru fimm
leikmenn sem settu þessi fimm mörk og er það aðeins í annað skiptið í
sögunni sem fimm leikmenn komast á blað hjá Keflavík í einum og sama
leiknum í efstu deild. Fyrra skiptið var í 1. umferð Íslandsmótsins
árið 1964 í 6-5 sigurleik gegn Fram. Þar skoraði Jón Jóhannsson tvö
mörk og þeir Jón Ólafur Jónsson, Einar Magnússon, Hólmbert Friðjónsson
og Rúnar Júlíusson eitt hver. Þetta ár varð Keflavík einmitt
Íslandsmeistari í fyrsta sinn.
Brynjar Örn skoraði sitt fyrsta mark fyrir Keflavík
í leiknum gegn Þrótti. Hann varð þar með 13. leikmaðurinn sem skorar
fyrir liðið í sumar en það er félagsmet. Áður höfðu 12 leikmenn skorað
fyrir Keflavík í efstu deild árin 1976 og 1977.
Guðmundur Steinars skoraði sitt 60. mark í efstu
deild gegn Þrótti. Hann varð þar með 22. leikmaðurinn til að ná þeim
áfanga í efstu deild karla. Þrír leikmenn sem leika í deildinni í
sumar eru fyrir ofan Guðmund á listanum, Tryggvi Guðmundsson með 97
mörk, Arnar Gunnlaugsson með 65 og Grétar Hjartarson með 62 mörk. -Tekið af www.keflavik.is Næsta sunnudag mun Keflavík spila afar þýðingarmiknn leik á útivelli í
vesturbænum gegn KR. Fyrirhugað er að vera með fríar sætaferðir á
leikinn frá Sundmiðstöðinni í Keflavík á sunnudag kl. 16:30. Til að
meta þörfina á rútu eru áhugasamir beðnir um að senda póst á
Knattspyrnudeild svo hægt sé að áætla fjöldann. Skorað er á
Keflvíkinga að fjölmenna á leikinn, skapa góða stemmningu í stúkunni og
fara svo heim glaðir í bragði, vonandi með þrjú stig í farteskinu.
Þeir sem hefðu áhuga á að nýta sér sætaferðir eru beðnir um að láta
vita sem fyrst á kef-fc@keflavik.is.
»
18.08.2008 11:47:11 / bolti
Leikurinn í gær var í alla staði frábær. Allir leikmennirnir voru að spila frábærlega. Ég fékk þessa skemmtilegu mynd senda frá vini mínum honum Steinbirni. Það er spurning hvort við ættum að fara að framleiða boli með svona mynd. Ef áhugi er fyrir því þá auglýsi ég eftir einhverjum til að sjá um það. 
Áfram Keflavík Rúnar I. Hannah
»
15.08.2008 11:59:08 / bolti
Þá er komið að næsta leik. Þróttur vann okkur í fyrri umferðinni og nú er kominn tími til að hefna fyrir það. Ég var beðinn að koma þessu á framfæri: Kvennaráð meistaraflokks Keflavíkur verður með til sölu bílafána á næsta heimaleik meistaraflokks karla, þeir munu kosta kr. 3000,-
'Afram Keflavík Rúnar I. Hannah
Já rétt er það Rúnar, það eru Þróttarar sem detta í heimsókn til okkar annað kvöld, en það verður ekki boðið uppá kaffi og kleinur inná vellinum,, neineinei það verður tekið hart á þessu á morgun og við ætlum okkur að leiðrétta þessi mistök sem urðu í fyrri umferðinni þegar við töpuðum fyrir þeim á Valbjarnarvelli. Við erum búnir að vera á helvíti flottu róli í deildinni í sumar og nú er bara lag, þurfum að vinna okkar leiki og vona að félagar okkar úr Hafnarfirðinum misstígi sig og við náum að sneika okkur uppfyrir þá í töflunni. Við þurfum að fjölmenna á leikinn á morgun og láta vel í okkur heyra. Það er einmitt leikur á morgun á sama tíma hjá Kef FC sem er utandeildarlið strákanna úr Pumasveitinni og okkar félaga, þannig að það mun vantar eitthvað af strákunum á leikinn á morgun, en við verðum bara að þjappa okkur saman og bæta aðeins í þetta, og það verða allir að taka vel undir í stúkunni á morgun gegn öflugum stuðningsmönnum Þróttara. Sjáumst á Sparisjóðsvellinum á morgun kl 19:15, Keflavíkursigur og ekkert annað!
»
12.08.2008 03:08:39 / Drummer
Já það var heldur betur boðið uppá fjörlegan leik í kvöld (í gær) gegn ÍA uppá Akranesi þar sem að alls litu 5 mörk dagsins ljós, og margt um að vera í leiknum. Bjarki félagi minn í Skagamörkunum var búinn að benda mér á markmanninn þeirra að hann ætti það til að vera í bullinu, og það kom heldur betur í ljós í kvöld þegar hann sendi skemmtilega stungusendingu með skalla aftur fyrir sig inná Símun sem skokkaði slakur á því með boltann inní markið og staðan 0-1. Við fáum svo aukaspyrnu á stórhættulegum stað, og þegar ég sá að Gummi var fyrir framan boltann þá sagði ég mönnum bara að fylgjast með markhorninu fjær, því þangað færi tuðran. Og viti menn, kvikindið söng þarna hástöfum Eurovision framlag Pólverja í ár og 0-2 staðreynd.
Í seinni hálfleik ákvað Arnar Gunnlaugs að hann vildi vera með í keppninni um flottasta markið í þessari umferð og smellti gyðingnum skemmtilega í stöngina í hausinn semí á Ómari og inn. 'Eg verð samt að hrósa Ómari fyrir magnaðan leik, hann er búinn að vera All in í allt sumar, og nokkuð ljóst pabbahlutverkið hefur afar góð áhrif á piltinn. Mr Redo kom svo inná í seinni hálfleik, og Ragettan Rosalega eins og ég kýs að kalla hann tók þarna 2 grimma spretti sem báðir skiluðu mörkum,, þar af fyrra markið með skemmtilegum klobba á Madsen í marki Skagamanna. By tha way Madsen, þú skuldar 10 armbeygjur homie..
Bæði lið vildu fá allavega sitthvort vítið, en ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá fannst mér við eiga það frekar skilið, en ef um brot var að ræða hjá Kenneth á Birni Bergmann þá var það utan teigs, þannig að það skipti ekki öllu. Heyrðu Kenneth, varstu að tippa á móti okkur á Lengjunni eða..? Strákurinn átti 2 hörku "skot" á okkar eigið mark þar sem að Ómar hefur greinilega tippað á Kef og ætlaði ekki að leyfa sænska risanum að krækja sér i nokkrar aukakúlur og bjargaði stórglæsilega eins og svo oft áður. "Ómar, oh oh oh Ómar...."
En þetta var overall virkilega góður sigur að okkar hálfu og ekki á hverjum degi sem við skorum 4 mörk uppá Skaga, enda væri það bara óeðlilegt að spila á hverjum einasta degi uppá Skaga,, held að KSÍ eða Keflavík myndi ekki taka það í mál..
Við erum ennþá í bullandi toppbaráttu og nú er bara komið að hefnd gegn Þrótturum í næsta leik í Keflavík á sunnudaginn kemur, og vona að FH fari að misstíga sig og við svo klárum þetta í semi hreinum úrslitaleik í Krikanum í næstsíðustu umferðinni í september.
Hvernig voru menn annars að meta kjúklingasalatið hjá Skagastrákunum ?
-Þess má svo til gamans geta að Bói var rétt í þessu valinn í landsliðshóp Íslands fyrir leikinn gegn Azerbaijan. Innilega til lukku með þetta gamli !
»
07.08.2008 23:57:47 / bolti
Ekki var þetta nú fallegur leikur og spilamennskan góð. En 3 stig í hús og það er fyrir öllu.
ÍA næst og nú er kominn tími á að hefna fyrir óheiðarlegasta mark Íslandssögunar. Við verðum að fara uppá Skaga og taka öll stigin.
Leikurinn hefur verið færður yfir á mánudag og verður sýndur á Stöð 2 sport. Eftir jöfnunarmark HK manna og fram að sigurmarki Hödda í síðasta leik var ég ákveðinn að fara ekki á leik í bráð. En um leið og Höddi skoraði breyttist þessi skoðun um leið og nú er ég harðákveðinn í að kíkja á Skagann. Þetta er það sem gerir fótboltann svo skemmtilegann.
Áfram Keflavík Rúnar I. Hannah
»
Síður: 1 2 3 ... 32
|
Talning
Fyrir 993 dögum
KEFLAVÍK vs. FH
Heimsóknir
Í dag: 4 Alls: 398191
|